Ræktaðu Röddina · Helgarnámskeið 6.—8. nóvember 2026
ÞÓREY · RR · 26 Tryggja sæti
Helgina 6.—8. nóvember 2026 · Reykjavík

Ræktaðu Röddina

Þétt helgarnámskeið fyrir þig sem vilt tala af meira öryggi og sterkari nærveru — án þess að þurfa að hækka röddina. Fyrir þig sem notar röddina daglega: í kennslu, í leiðtogastarfi, í samskiptum.

Ertu óviss hvort námskeiðið henti þér? Bókaðu stutt samtal.

Dagsetning6.—8. NÓV
StaðurREYKJAVÍK
Umfang14 KLST
Hópur10 SÆTI
10
sæti í boði
Þórey Sigþórsdóttir · Voice Coach
Ræktaðu Röddina ✦ Nóvember 2026 ✦ Stórhöfði 27 ✦ 14 klst ✦ 10 sæti ✦ Nadine George Voice Work ✦ Ræktaðu Röddina ✦ Nóvember 2026 ✦ Stórhöfði 27 ✦ 14 klst ✦ 10 sæti ✦ Nadine George Voice Work ✦
01 Röddin er atvinnutækið þitt

Hvernig ertu að hugsa
um röddina þína?

Ef þú vinnur með fólk, kennir, leiðir eða stendur reglulega fyrir framan hóp — þá er röddin ekki aukahlutur. Hún er grunnurinn.

  1. Raddþreyta eftir daginn?
  2. Þú þarft að hækka röddina til að ná athygli?
  3. Skilaboðin lenda ekki alltaf eins og þú vilt?
  4. Spenna í líkamanum áður en þú talar?
  5. Þú heldur á köflum aftur af röddinni?
02 Heyrðu þetta beint frá Þóreyju
Spila kynningu

„Þú þarft ekki að tala hærra — heldur að tala þannig að fólk hlusti.“

03 Þrjár stoðir námskeiðsins

Þú þarft ekki að tala hærra.
Heldur að tala þannig að fólk hlusti.

Öryggi
í stað kvíða

Raddþjálfun er ein áhrifaríkasta leiðin til að vinna gegn ótta við að tala fyrir framan fólk.

  • Líkamsbeiting og öndun
  • Spenna og taugakerfi
  • Hugsanir og tilfinningar

Sterk nærvera
fólk hlustar

Góð raddbeiting skapar góða nærveru — án þess að þú þurfir að hækka röddina.

  • Vekur athygli án áreynslu
  • Styrkir samskipti og traust
  • Heldur rýminu með ró

Skýr rödd
skýr skilaboð

Skýr raddbeiting og virk hlustun skapa skýrari samskipti í starfi og einkalífi.

  • Dregur úr misskilningi
  • Minnkar pirring og óöryggi
  • Skýr skilaboð skapa áhrif
04 Það sem þú færð

Fjórir þættir.
Ein helgi.

Að þjálfa röddina er eins og að þjálfa „vöðva sálarinnar". Hver eining byggir á þeirri sem á undan kemur — og skilar þér heim með aðferðir sem halda.

01

Öndunaræfingar

Djúp og meðvituð öndun er grunnur að góðri raddbeitingu. Þú lærir að finna rétt spennujafnvægi í líkamanum og róa taugakerfið.

Margir upplifa
  • Betri svefn
  • Meiri ró
  • Minni spennu og verki
02

Raddæfingar

Markviss vinna með raddsvið og orkuna í röddinni, meðal annars við píanóið. Með Nadine George Voice Work lærirðu að líkamstengja röddina.

Þú færð
  • Líkamstengingu
  • Aukið úthald og styrk
  • Stærra raddsvið
03

Rýmisæfingar

Rödd og nærvera fara saman. Æfingar sem skerpa fókus, tengja líkama og rödd í hreyfingu og styðja þig í að taka rýmið.

Útkoman
  • Skarpari fókus
  • Líkami + rödd tengd
  • Styrkari nærvera
04

Textaæfingar

Æfingar sem tengja opnun í öndun og rödd yfir í textaflutning og daglegt tal. Þú lærir að þekkja röddina þína og stilla styrk eftir aðstæðum.

Niðurstaðan
  • Þú þekkir röddina
  • Stillir styrk
  • Kraftmikil og lágstemmd
Niðurstaðan

Traust rödd = gott sjálfstraust

Þegar röddin verður traust breytist eitthvað dýpra. Þú ert ekki aðeins að læra æfingar — þú ert að byggja upp nýja raddvitund sem þú tekur með þér inn í vinnu, samskipti og daglegt líf.

Til framtíðar
  • Breytt raddvitund
  • Styrkt sjálfstraust
  • Hluti af sjálfsmynd þinni
Frá þátttakendum

Þetta segja
þau sem hafa komið.

Allir sem nota röddina sem atvinnutæki daglega ættu að taka þetta námskeið. Það kenndi mér að nota röddina rétt.
Aðstoðarskólastjóri
Á einni helgi náði ég ótrúlega miklum árangri sem er strax farinn að skila sér í betri samskiptum.
Verkefnastjóri
Ég finn fyrir auknu frelsi í röddinni og meiri styrk.
Kennari
Valdeflandi námskeið sem fyllir mann af sjálfstrausti og hugrekki!
Make-up artist
Ef ég hefði einhvern tíma verið nálægt því að geta flogið, þá var það í lok þessa námskeiðs.
Ráðgjafi
Frábær leið til að læra á röddina, fá hjálp við að styrkja hana og um leið til sjálfstyrkingar.
Tónlistarkona
Allir sem nota röddina sem atvinnutæki daglega ættu að taka þetta námskeið.
Aðstoðarskólastjóri
Á einni helgi náði ég ótrúlega miklum árangri.
Verkefnastjóri
Ég finn fyrir auknu frelsi í röddinni og meiri styrk.
Kennari
Valdeflandi námskeið sem fyllir mann af sjálfstrausti og hugrekki!
Make-up artist
Hæ, ég er Þórey
05 Kennarinn

Röddin er ekki bara hljóð.
Hún er hvernig þú tekur pláss.

Ég hef starfað sjálfstætt sem leikkona, leikstjóri og radd- og leiklistarkennari frá 1991. Í meira en þrjá áratugi hef ég unnið með rödd, nærveru og tjáningu — bæði á sviði og í kennslu.

Ég hef séð aftur og aftur hvernig röddin speglar sjálfsmyndina okkar. Röddin er atvinnutæki fyrir marga — en hún er líka hluti af því hver við erum.

Þegar ég tengdist minni rödd á dýpri hátt upplifði ég raunverulegt sjálfsöryggi — ekki bara sem leikkona, heldur sem manneskja. Því frelsi vil ég miðla áfram.

Ég er viðurkenndur kennari í Nadine George Voice Work, með réttindi frá Voice Studio International í London, og hef lokið tveimur meistaragráðum — MA í Advanced Theatre Practice (samsköpunaraðferðum í leikhúsi) frá Central School of Speech and Drama í London og MA í hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands — auk þjálfunar í markþjálfun.

Hef kennt við
  • Listaháskóla Íslands · Sviðslistadeild
  • Listaháskóla Íslands · Listkennsludeild
  • Kvikmyndaskóla Íslands
  • Háskóla Íslands
  • Háskólann í Reykjavík
06 Fjárfesting

Fjárfesting
í röddinni þinni.

Þessi helgi er fjárfesting í öryggi, nærveru og varanlegri raddvitund.

Stéttarfélög styrkja þetta námskeið gjarnan — kannaðu rétt þinn hjá þínu félagi. Til að tryggja þér pláss greiðir þú 10.000 kr staðfestingargjald sem dregst frá heildarverði.

Staðfestingargjald 10.000 kr
Eftirstöðvar fyrir námskeið 78.000 kr
Heildarfjárfesting 88.000 kr

Mundu að skrifa nafn og netfang í reitinn sem birtist eftir kortagreiðsluna 🙏

Snemmskráningu lýkur 25. október.

Skráningargjaldið er óafturkræft nema námskeiðið verði ekki haldið. Heildarfjárfesting greiðist að fullu áður en námskeiðið hefst.

07 Praktískt
Föstudagur 6. nóvember

17:00 — 21:00

Opnun og fyrstu æfingar.

Laugardagur 7. nóvember

10:30 — 15:30

Raddvinna, rými og texti.

Sunnudagur 8. nóvember

10:30 — 15:30

Samþætting og heildaræfingar.

Staðsetning

Rafmennt

Stórhöfði 27, 110 Reykjavík.

Innifalið

Námskeiðsgögn · Staðfestingarskjal · Létt hressing í pásum

Umfang

Alls 14 klukkustundir á þremur dögum.

Hópur

Lítill hópur — aðeins 10 sæti — fyrir persónulegan stuðning.

Algengar spurningar

Námskeiðið er fyrir þig ef þú notar röddina í starfi eða lífi — t.d. í kennslu, leiðtogahlutverki, samskiptum, framsögu eða þegar þú stendur fyrir framan hóp. Það hentar líka vel skapandi fólki (leikarar, leikstjórar, tónlistarfólk) sem vill dýpka tenginguna við röddina.

Þá er þetta samt líklega fyrir þig. Röddin er atvinnutæki hjá miklu fleirum en kennurum — í ráðgjöf, stjórnun, þjónustu, heilbrigðisstarfi, listum. Og hún er tækið sem þú notar í samtölunum sem skipta mestu máli, líka utan vinnunnar. Þú þarft ekki að standa fyrir framan hóp til að hafa gagn af þessu.

Nei. Þú þarft ekki að kunna neitt fyrir. Við byrjum þar sem þú ert og byggjum upp skref fyrir skref.

Við vinnum í öruggu og nærandi rými. Markmiðið er að þú finnir öryggi og styrk til að taka pláss á þínum forsendum.

Nei. Þetta er ekki sýning og þú þarft ekki að syngja. Við notum rödd, öndun og æfingar til að opna raddsvið og styrkja raddbeitingu — á öruggan og aðgengilegan hátt.

Þá getur námskeiðið verið sérstaklega gagnlegt. Við vinnum með öndun, líkama, spennujafnvægi og raddbeitingu sem styður röddina. (Ef þú ert með alvarleg einkenni eða ert í læknismeðferð er alltaf gott að fylgja ráðleggingum heilbrigðisstarfsfólks líka.)

Oft já. Stéttarfélög styrkja þetta námskeið gjarnan. Athugaðu rétt þinn hjá þínu félagi.

Til að tryggja þér pláss greiðir þú 10.000 kr staðfestingargjald. Upphæðin dregst frá heildarverði — 88.000 kr — og restin greiðist áður en námskeiðið hefst. Snemmskráningu lýkur 25. október.

Já, þú getur sent mér tölvupóst: [email protected]

Röddin þín er þarna. Treystu henni.

Þú þarft ekki að verða háværari eða breyta því hver þú ert. Þú getur lært að standa með röddinni þinni — með meira öryggi, frelsi og nærveru.

Já — ég vil rækta röddina mína
Ræktaðu Röddina  ✦  6.—8. nóvember 2026  ✦  10 sæti  ✦  Reykjavík  ✦  Ræktaðu Röddina  ✦  6.—8. nóvember 2026  ✦  10 sæti  ✦  Reykjavík  ✦ 
10 sæti Ræktaðu Röddina · 6.—8. nóvember 2026 · Reykjavík
Tryggja sæti