Öndunaræfingar
Djúp og meðvituð öndun er grunnur að góðri raddbeitingu. Þú lærir að finna rétt spennujafnvægi í líkamanum og róa taugakerfið.
- Betri svefn
- Meiri ró
- Minni spennu og verki
Þétt helgarnámskeið fyrir þig sem vilt tala af meira öryggi og sterkari nærveru — án þess að þurfa að hækka röddina. Fyrir þig sem notar röddina daglega: í kennslu, í leiðtogastarfi, í samskiptum.
Snemmskráningarverð 78.000 kr til og með 7. september — fullt verð 88.000 kr eftir það.
Ertu óviss hvort námskeiðið henti þér? Bókaðu stutt samtal.
Ef þú vinnur með fólk, kennir, leiðir eða stendur reglulega fyrir framan hóp — þá er röddin ekki aukahlutur. Hún er grunnurinn.
„Þú þarft ekki að tala hærra — heldur að tala þannig að fólk hlusti.“
Raddþjálfun er ein áhrifaríkasta leiðin til að vinna gegn ótta við að tala fyrir framan fólk.
Góð raddbeiting skapar góða nærveru — án þess að þú þurfir að hækka röddina.
Skýr raddbeiting og virk hlustun skapa skýrari samskipti í starfi og einkalífi.
Að þjálfa röddina er eins og að þjálfa „vöðva sálarinnar“. Hver eining byggir á þeirri sem á undan kemur — og skilar þér heim með aðferðir sem halda.
Djúp og meðvituð öndun er grunnur að góðri raddbeitingu. Þú lærir að finna rétt spennujafnvægi í líkamanum og róa taugakerfið.
Markviss vinna með raddsvið og orkuna í röddinni, meðal annars við píanóið. Með Nadine George Voice Work lærirðu að líkamstengja röddina.
Rödd og nærvera fara saman. Æfingar sem skerpa fókus, tengja líkama og rödd í hreyfingu og styðja þig í að taka rýmið.
Æfingar sem tengja opnun í öndun og rödd yfir í textaflutning og daglegt tal. Þú lærir að þekkja röddina þína og stilla styrk eftir aðstæðum.
Þegar röddin verður traust breytist eitthvað dýpra. Þú ert ekki aðeins að læra æfingar — þú ert að byggja upp nýja raddvitund sem þú tekur með þér inn í vinnu, samskipti og daglegt líf.
Allir sem nota röddina sem atvinnutæki daglega ættu að taka þetta námskeið. Það kenndi mér að nota röddina rétt.
Á einni helgi náði ég ótrúlega miklum árangri sem er strax farinn að skila sér í betri samskiptum.
Ég finn fyrir auknu frelsi í röddinni og meiri styrk.
Valdeflandi námskeið sem fyllir mann af sjálfstrausti og hugrekki!
Ef ég hefði einhvern tíma verið nálægt því að geta flogið, þá var það í lok þessa námskeiðs.
Frábær leið til að læra á röddina, fá hjálp við að styrkja hana og um leið til sjálfstyrkingar.
Allir sem nota röddina sem atvinnutæki daglega ættu að taka þetta námskeið.
Á einni helgi náði ég ótrúlega miklum árangri.
Ég finn fyrir auknu frelsi í röddinni og meiri styrk.
Valdeflandi námskeið sem fyllir mann af sjálfstrausti og hugrekki!
Ég hef starfað sjálfstætt sem leikkona, leikstjóri og radd- og leiklistarkennari frá 1991. Í meira en þrjá áratugi hef ég unnið með rödd, nærveru og tjáningu — bæði á sviði og í kennslu.
Ég hef séð aftur og aftur hvernig röddin speglar sjálfsmyndina okkar. Röddin er atvinnutæki fyrir marga — en hún er líka hluti af því hver við erum.
Þegar ég tengdist minni rödd á dýpri hátt upplifði ég raunverulegt sjálfsöryggi — ekki bara sem leikkona, heldur sem manneskja. Því frelsi vil ég miðla áfram.
Ég er viðurkenndur kennari í Nadine George Voice Work, með réttindi frá Voice Studio International í London, og hef lokið tveimur meistaragráðum — MA í Advanced Theatre Practice (samsköpunaraðferðum í leikhúsi) frá Central School of Speech and Drama í London og MA í hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands — auk þjálfunar í markþjálfun.
Þessi helgi er fjárfesting í öryggi, nærveru og varanlegri raddvitund.
Stéttarfélög styrkja þetta námskeið gjarnan — kannaðu rétt þinn hjá þínu félagi. Til að tryggja þér pláss greiðir þú 10.000 kr staðfestingargjald sem dregst frá heildarverði. Skráðu þig til og með 7. september og þú færð snemmskráningarverð — 78.000 kr í stað 88.000.
Einkatími með Þóreyju í október.Til að festa æfingarnar í sessi og fá persónulega leiðsögn eftir námskeiðið.
Skráningu lýkur 15. september — eða þegar sætin klárast.
Skráningargjaldið er óafturkræft nema námskeiðið verði ekki haldið. Heildarfjárfesting greiðist að fullu áður en námskeiðið hefst.
Opnun og fyrstu æfingar.
Raddvinna, rými og texti.
Samþætting og heildaræfingar.
Stórhöfði 27, 110 Reykjavík.
Námskeiðsgögn · Staðfestingarskjal · Létt hressing í pásum
Alls 14 klukkustundir á þremur dögum.
Lítill hópur — aðeins 10 sæti — fyrir persónulegan stuðning.
Námskeiðið er fyrir þig ef þú notar röddina í starfi eða lífi — t.d. í kennslu, leiðtogahlutverki, samskiptum, framsögu eða þegar þú stendur fyrir framan hóp. Það hentar líka vel skapandi fólki (leikarar, leikstjórar, tónlistarfólk) sem vill dýpka tenginguna við röddina.
Þá er þetta samt líklega fyrir þig. Röddin er atvinnutæki hjá miklu fleirum en kennurum — í ráðgjöf, stjórnun, þjónustu, heilbrigðisstarfi, listum. Og hún er tækið sem þú notar í samtölunum sem skipta mestu máli, líka utan vinnunnar. Þú þarft ekki að standa fyrir framan hóp til að hafa gagn af þessu.
Nei. Þú þarft ekki að kunna neitt fyrir. Við byrjum þar sem þú ert og byggjum upp skref fyrir skref.
Við vinnum í öruggu og nærandi rými. Markmiðið er að þú finnir öryggi og styrk til að taka pláss á þínum forsendum.
Nei. Þetta er ekki sýning og þú þarft ekki að syngja. Við notum rödd, öndun og æfingar til að opna raddsvið og styrkja raddbeitingu — á öruggan og aðgengilegan hátt.
Þá getur námskeiðið verið sérstaklega gagnlegt. Við vinnum með öndun, líkama, spennujafnvægi og raddbeitingu sem styður röddina. (Ef þú ert með alvarleg einkenni eða ert í læknismeðferð er alltaf gott að fylgja ráðleggingum heilbrigðisstarfsfólks líka.)
Oft já. Stéttarfélög styrkja þetta námskeið gjarnan. Athugaðu rétt þinn hjá þínu félagi.
Til að tryggja þér pláss greiðir þú 10.000 kr staðfestingargjald. Upphæðin dregst frá heildarverði og restin greiðist áður en námskeiðið hefst. Snemmskráningarverð er 78.000 kr til og með 7. september — eftir það er heildarverðið 88.000 kr. Skráningu lýkur 15. september, eða þegar sætin klárast.
Já, þú getur sent mér tölvupóst: [email protected]
Þú þarft ekki að verða háværari eða breyta því hver þú ert. Þú getur lært að standa með röddinni þinni — með meira öryggi, frelsi og nærveru.
Já — ég vil rækta röddina mína